Rannsóknarspurningin okkar er “Hvað leynist á bak við tjöldin í Leikfélagi Vestmannaeyja?”.
Hér eru allar upplýsingar, rannsóknir, kannanir og heimildir um verkefnið okkar og einnig myndir frá leikhúsinu okkar hér í Vestmannaeyjum.
Og hvað leynist á bakvið tjöldin?
Þar leynist margt skemmtilegt og spennandi einnig sumt skuggalegt og jafnvel yfirnáttúrulegt. Fyrir sýningu er að mörgu að snúast t.d. þarf að smíða leikmynd, sækja leyfi um höfundarétti, æfa og læra texta, laga ljós og hljóð, búa til búninga, sminka, þrif og viðhald. Til þess að gera góða sýningu þarf allt að vera fullkomið og mikill undirbúningur.