Niðurstöðurnar sem við fengum er að það leynist mjög margt á bakvið tjöldin. Leikfélagið eru margar litlar deildir til þess að búa til eina stóra og góða heild. Fyrir leiksýningu þarf að undirbúa margt og það væri hægt að búa til ritgerð um allt sem gerist í leikhúsinu t.d. það þarf að undirbúa höfundarrétt, fá leikstjóra, búa til sviðsmynd, búa til búninga, fá leikara, leikarar læra texta sína, læra smink og margt margt fleira.
Við fengum að kafa djúpt inn í þekkingu leikhússins og fengum að taka viðtal við skemmtilega einstaklinga sem sögðu okkur frá mörgu sem tengist leikhúsinu.
Í raun og veru er allt verkefnið niðurstöðurnar okkar, öll sagan, viðtölin og könnunin. Þannig það er ekki til neitt stutt svar yfir spurningunni okkar því svarið er svo víðamikið.