Hlutverk mitt sem formaður er að halda utanum leikfélagið, bara að allt gangi eins og smurð vél hvort sem að það er sýning eða ekki. Ég er andlit félagsins útávið og sé um að boða fundi í félaginu. Ég er búinn að vera í Leikfélaginu síðan árið 1986. Ég er löngu búinn að missa töluna af því hversu mörgum leikritum ég hef komið að eða leikið í. Eftirminnilegasta leikritið er “Sjö stelpur”. Það var dramaleikrit og það fjallaði um sjö stelpur sem voru á unglingaheimili. Hver var með sín vandamál. Þetta tók rosalega á mann því maður þurfti að einbeita sér að því að leika en ekki að haga sér bara eins og fífl. Leikstjórinn var líka svo smámunasöm, ég átti að vera með gullhring með bláum stein á baugfingri en það var ekki til hringur neinstaðar og engin var til æi að lána þannig að ég fór og keypti plat hring en þá var leikstjórinn ekki ánægð og sagði að ég gæti ekki notað hana. Það skemmtilegasta sem ég geri er þegar ég get setið æfingarnar og sýningarnar allann tímann og vinna með börnum. Vinna með börnum sem eru að byrja og sjá hvað þau þroskast mikið, muninn á þeim þegar þau koma inn og þegar tímabilið er búið, það er alveg vinnunar virði. Ef ég mætti ráða öllu í heiminum þá myndi ég náttúrulega vilja meira pláss en ég myndi í sjálfusér ekki breyta miklu, það er aðalega bara plássið og að fá góða sviðsmenn. Ég er ekki með neitt ákveðið barnaleikrit sem ég myndi vilja sjá enda er ég ekkert mikið inni í þessum barnaleikritum. Það sem mér finnst skemmtilegast er að hafa ekki séð leikritið áður. Mér finnst við, LV alveg vera á þröskuldinum að vera atvinnuleikhús, þetta eru svo rosalega flottar sýningar og allt bara svo flott hjá okkur. En ég myndi ekki vilja að breyta þessu í atvinnuleikhús vegna alls kostnaðar sem fylgir að borga laun vegna alls launatengds kostnaðar.
Sóley Linda Egilsdóttir - 23. maí 2018
Ég er með BA - gráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og þar tók ég ensku sem aukagrein, svo er ég með mastersgráðu í theater directing frá Englandi og það er svona leikstjórn og leikhúsfræði, það á að undirbúa mann undir ýmislegt eins og leikstjórn eða kennslu í leiklist eða eitthvað svoleiðis. Það sem mér finnst orðið að leikstýra þýða er að hjálpa leikurunum og hjálpa þeim að gera þetta saman. Mér finnst ekki að það sé að skipa leikurunum fyrir að gera hitt og þetta. Finna alla kosti og hvað á að gera, bara láta alla ganga. Ég sá “Sex í sveit og ég gæti algjörlega hugsað mér að leikstýra í LV en ég er ekkert ennþá búinn að sækja um eða neitt svoleiðis, ég vildi fyrst bara koma mér inní samfélagið og svoleiðis. Og ég mun örugglega sækja um einhverntímann og vona að þau ráði mig. Ég myndi vilja gera eitthvað smá dýpri sýningu en hefur verið gert áður ekki bara grín. Hluti af lokaverkefninu mínu var að setja upp sýningu og ég setti upp mjög sérstakt absurd leikrit.
Alexander Páll Salberg - 24. maí 2018
Hlutverk mitt sem stjórnarmeðlimur er að halda utanum ýmsa hluti en annars er ég bara allt í öllu, annars er ég líka mikið að leika. Ég hef verið í LV síðan árið 2003 eða í 15 ár. Ég er búinn að missa töluna yfir hversu mörgum leikritum ég hef leikið í eða verið partur af, en ég ætla að skjóta á 24 stikki gæti verið að það sé minna og gæti líka verið að það sé meira. Eftirminnilegasta leikritið er “Bana stuð” vegna þess að það var bara svo ógeðslega gaman að leika í því. Það sem mér finnst skemmtilegast að gera í LV er bara að æfa, fíflast og að vera bara ég sjálfur. Það sem ég myndi vilja breyta eða bæta í LV væri líklega að bæta í flotann í verkfærunum, svo væri ég til í að sjá meira gert fyrir ungu kynslóðina, að efla þau meira og hafa aftur eins og var einusinni, sumar fílingurinn og allt það, vegna þess að það var líka notað til þess að búa til leikara, ég sakna þess svolítið. Drauma sýningin er alltaf “Þegar tröllið stal jólunum”. Ég byrjaði í LV vegna þess að ég fór á viku sumarnámskeið hjá tveim þekktum leikkonum og heillaðist bara af leiklistinni þar, ég passaði ekki inní fótboltann, handboltann eða neinar svona íþróttir en ég fann mig smella í leiklistinni og hér er ég enn.
Viktor Rittmüller 26.5.2018 Hlutverk mitt í LV er gjaldkeri og tæknistjóri. Ég er búinn að vera í LV í 12 ár. Ég hef leikið í 6 verkum en tekið þátt í samtals 22 verkum. Eftirminnilegustu leikritin eru Mamma mia og Grease. Það sem mér finnst skemmtilegast að gera er að lýsa, stjórnarstarfið og vera með frábæru fólki. Það sem ég myndi vilja breyta við LV væri að vera með stærra svið með meiri lofthæð. Næsta sýning sem ég myndi vilja sjá er Jersey Boys. Það sem mætti bæta er að það mætti vera meiri aðsókn á metnaðarfullu sýningarnar okkar.